Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Litlir sandkassar

Ég skrapp til Finnlands nýlega og þegar ég kom hingað heim aftur, þá fannst mér eins og lífið hér væri leikur í ofur litlum sandkassa í samanburði.  Allt var svo yfirþyrmandi í Helsinki, risastórar tuskubúðir út um allt, heil supermarkaða og "Kringlu" þorp höfðu risið upp í úthverfinu, apótekin voru einnig risastór og úrval af alls konar lyfjum. Fyrir framan hótelin voru raðir af rútubílum og agentar stóðu á götu og hrópuðu:  "Ferð til Pétursborgar."  Helsinki er augljóslega vinsæl meðal Rússa á innkaupaferðum.  -  Samt er Helsinki eins og lítið sveitaþorp í samanburði við stórborgir - og jafnvel smærri borgir - víða um lönd. 

Þessi tilfinning mín um leik í litlum sandkassa varð þeim mun sterkari, þegar ég fór að fletta blöðum sem höfðu borist í húsið á meðan ég var í burtu.  Þarna hafði mál Hannesar Hólmsteins dúkkað upp aftur .    -  Aumingja Hannes, það er vont að hafa fengið stöðuna í trássi við "klíkuna".  Samst konar klíkuskapur og helmingaskipti fara vitaskuld fram alls staðar, einnig í mínu hjartkæra heimalandi, Finnlandi.  Munurinn er bara sá, að í Finnlandi (og meðal fjölmennari þjóða) hafa allir flokkar svo mikið af 100 % hæfu fólki innan raða sinna að það getur enginn fett fingur um eða fullyrt að óhæfur maður hafi verið skipaður, eins og gert var í Hannesar tilfelli.  Flokkarnir mundu heldur ekki treysta sér á svo hálan ís.  En í litlu sandkassanum hér á Íslandi er kannski stundum hörgull á hæfu fólki á ákveðnum sviðum og þá á að skipa einhvern sem geti talist hæfur, ef rúmt er túlkað. 
Mikið er ég ánægð að hafa aldrei sóst eftir að komast til metorða.  Einu sinni var ég skömmuð fyrir að hafa ekki metgirni og sóa hæfileikum mínum og vel getur verið að það sé rétt.  En lífið er svo miklu þægilegra fyrir okkur letingjana, sem látum það nægja að vera bara áhorfendur í staðinn fyrir að taka þátt í barðagana í kassanum.

Sumarhátíð Sólhlíðar

Það hefur verið svo mikið að gera í vinnunni að allt annað hefur staðið á hakanum.  Maður tók varla eftir því að nýr oddviti var kominn í borgarstjórnarflokk Sjálfstæðismanna.  Ég óska Hönnu samt til hamingju og vona að hún verði gæfusamari en fyrirrennarinn í starfi.  Aftur á móti er það á ramman reip að draga hjá henni.  Og ef illa fer, þá saka keppinautar hennar örugglega hana um að ekki hafi tekist betur.  En það er nú bara svo að jafnvel þó að einhverjir aðrir gætu verið vinsælir hjá innsta kjarna flokksins þá virðist Hanna vera vinsælasti kandídatinn meðal borgabúa.  Og til að ná meirihlutann og sannfæra borgarbúa um að flokkurinn vinni fyrir alla borgarbúa þurfa þeir að hafa stuðning fleiri kjósenda en þeirra sem eru flokksbundnir.

Ógnandi úlfur Tuomi Jæja, þetta var nú svona út úr því að eiginlega ætlaði ég bara að nefna að leikskólinn Sólhlíð var með sína árlega sumarhátíð á þriðjudaginn og þarna mætti ég í hlutverki ömmunnar.  Alltaf gaman að taka þátt í gleði barna.  Læt hér fylgja nokkrar myndir af þátttakendum og skreytingunum sem börnin höfðu útbúið.  Þetta var nú svo síðasta sumarhátíðin í bili því að í haust fer barnabarnið í "alvöru" skólann, byrjar í 1. bekk Hlíðaskóla. 

Býfluga 01


Höfundur

Lea Marjatta Ísberg
Lea Marjatta Ísberg
Marjatta Ísberg er síbúi, eytt meira en hálfa ævi hér á landi, en með rætur í Finnlandi. Marjatta hefur starfað sem kennari á Patreksfirði, Keflavík, Sandgerði og Kópavogi og einnig starfað sem blaðamaður í lausamennsku.  Eftir hana eru komnar út þrjár bækur á íslensku: Smásagnasöfnin Ljóðelskur maður borinn til grafar (2002), Óræðir draumar (2003) og pælingar undir heitinu Gests augað (2009).

Mars 2010

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband