21.2.2008 | 18:21
LOGOS - lestrargreiningarforrit
Stór dagur fyrir Íslendinga:
Fjórir sérkennarar, Bjarnfríður Jónsdóttir, Guðbjörg Ingimundardóttir, Guðlaug Snorradóttir og Gyða M. Arnmundsdóttir hafa unnið það þrekverk að þýða og staðla lestrargreiningarforritið LOGOS sem upphaflega var þróað af Torleiv Hoien prófessor við Lestrarrannsóknarstöðinni í Stafangri.
Aðrar þjóðir hafa í áraraðir notað tölvuna við greiningar því að bæði er sú aðferð mun nákvæmari og einnig er hægt að tengja allar upplýsingar við töflureikni og láta tölvuna gera allar útreikningar og teikna gröf til samanburðar. Hér á landi hefur ekkert slíkt tölvutækt próf verið staðlað fyrr og er hér því um algjöra frumkvöðlastarfsemi að ræða. Það sem er enn mikilvægara er að þetta próf er ekki sett í einhvern bás uppi í háskóla heldur er það tæki í höndum kennara sem sérhæft hafa sig í lestri, þ.e. starfandi sérkennara.
Bjarnfríður, Guðbjörg, Guðlaug og Gyða hafa unnið allt í sjálfboðavinnu í hjáverkunum á meðan hin Norðurlöndin hafa skipað sveit sérfræðinga á launum í stöðlunarferlið. Viðurkenna þarf að bæði heimasveitafélög þeirra og mörg fyrirtæki hafa stutt þá fjárhagslega en það hefur allt farið í kostnaðinn og engin laun hafa þær þegið fyrir vinnu sína. Því er það enn aðdáunarverðara að þeir hafi ráðist í þetta stórverk. Ef einhver á fálkaorðu eða íslensk menntaverðlaun skilið þá er það þessi hópur. Nýja greiningarforritið mun þjóna öllum skólaheiminum sem verkfæri í skipulagningu kennslunnar og einnig fyrir fullorðna Íslendinga svo að þeir skilji hvar skórinn kreppi og hvað hægt sé að gera til að ná betri færni í lestri og ritun. Af eigin reynslu þekki ég það hversu mikil þörf er á slíku.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.2.2008 kl. 09:18 | Facebook







Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.