Granatepli og góðir gestir

Ekki er allt jafn leiðinglegt þó að sviptingar í borgarmálum hafi gert gramt í geði.  Skólinn okkar hefur verið í samstarfi við nokkra evrópska skóla síðan 2005 og komu nú í byrjun febrúar gestir til okkar frá vinaskólunum í Finnlandi og Portugal.  Þetta samstarf fær styrk úr s.k. Comeniussjóði Evrópusambands og EEC landanna. Við köllum verkefnið okkar Tales of Europe Promoting Creativity, Communications and Cultural Awareness.

Smile  Frá Lissabon komu þau Albertina skólastjóri og tveir kennarar, Maria og Ricardo.  Þau kenndi nemendum okkar m.a. skemmtilegt sönglag á portugölsku og einnig dans sem krakkarnir höfðu gaman af.

Auk þess kenndi Maria hvernig að búa til einfaldan eftirrétt af granateplum sem hún hafði komið með.  Skorið er í eplið með beittan hníf og kjarninn fjarlægður, þ.e. fræin tekin úr, en gæta þarf að láta ekkert af hvítu efni hýðisins koma með því að það er rammt.  Fræin eru svo sett á disk og sykri stráð yfir.  Svo einfalt er það!  -  Fyrir fullorðna smá bæta smáskvettu af púrt eða brandý við.  Þessi eftirréttur er gjarnan hafður á nýársdaginn og á þrettandanum í Portugal.  -  Íslendingar sem horfðu á þessa sýnikennslu spurðu forvíða:  " Er ekki einu sinni rjómi?"  Það virðist vera að rjómi sé séríslenskur (eða sérdanskur?) siður. Maria-best


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Kíktu inn á síðuna mína og segðu hvað þér finnst um NOVA auglýsingarnar

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 15.2.2008 kl. 12:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Lea Marjatta Ísberg
Lea Marjatta Ísberg
Marjatta Ísberg er síbúi, eytt meira en hálfa ævi hér á landi, en með rætur í Finnlandi. Marjatta hefur starfað sem kennari á Patreksfirði, Keflavík, Sandgerði og Kópavogi og einnig starfað sem blaðamaður í lausamennsku.  Eftir hana eru komnar út þrjár bækur á íslensku: Smásagnasöfnin Ljóðelskur maður borinn til grafar (2002), Óræðir draumar (2003) og pælingar undir heitinu Gests augað (2009).

Mars 2010

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband