Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Ég hef verið dugleg að skrifa á finnsku bloggsíðuna mína (www.sananrieskaa.blogspot.com) svo að lítið hefur orðið af skrifum á íslensku. En nú sá ég á fréttavef ruv athyglisverða grein. Innihaldið var þannig að ég hélt fyrst að ég væri að lesa mbl.is en nei, þetta var sjálfur fréttamiðill ríkisstjónarinnar. Því fannst mér ástæða til að dreifa boðskapinn. Og hér kemur hann, með leyfi ruv, vonandi:
Tryggingakerfið féll á prófinu
John Kay er einn þekktasti hagfræðingur heims og fastur pistlahöfundur í Financial Times. Í nýjasta pistli hans gagnrýnir hann evrópska innstæðutryggingakerfið harðlega, það hafið fallið á fyrsta stóra prófinu sem lagt var fyrir það. Kay segir óþolandi að veikburða bankar, eins og Kaupþing og Landsbankinn, hafi komist upp með að bjóða gráðugum innistæðueigendum vexti yfir markaðskjörum með ríkisábyrgð. Það sé lítið réttlæti fólgið í því að innistæðueigendurnir geti gert kröfu á venjulegt fólk sem var annað hvort of skynsamt til að treysta bönkunum eða skorti fjármuni til að leggja inn á þá.
Kay segir að Bretar réttlæti hrottaskap sinn gagnvart íslenskum almenningi með sömu rökum og allir hrottar beiti; þeir geri það vegna þess að þeir geti það - eða héldu að þeir gætu það. Íslendingar séu nú komnir í betri vígstöðu því fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave gefi almenningi í fyrsta sinn tækifæri til að vísa frá sér ábyrgð á afglöpum banka og bankamanna. Það myndi valda straumhvörfum í Icesave málinu og því reyni Bretar og Hollendingar nú að ná samningum við Íslendinga. Við ættum að skammast okkar, segir John Kay að lokum.
frettir@ruv.is
Stjórnmál og samfélag | 24.2.2010 | 13:32 (breytt 25.2.2010 kl. 09:53) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í Mbl. í morgun er fjallað um atvinnuleysið hérá landi - nú 9 % - og farið í ítarlegar útleggingar um það hversu lítið atvinnuleysið er miðað við önnunr lönd. Mér finnst þetta afar vitlaus röksemdarfærsla. Atvinnuleysið er böl og við eigum ekki að verja það með því að vitna í tölfræðiupplýsinga annarra landa. Það hefur nefnilega einmitt verið gæfa Íslendinga að hafa fulla atvinnu. Atvinnuleysinu fylgja alls konar hlíðarverkanir sem rugga bátinn og leiða t.d. í aukinn drykkjuskap, glæpi, fjölskylduerjur svo ekki sé talað um þunglyndi og sállíkamlega sjúkdóma. Allt þetta er kostnaðarsamt fyrir samfélagið, bæði á andlega sviðinu og í beinhörðum peningum.
Sem sé: Engar afsakanir með tilvitnanir í annarra landa tölur. Hið opinbera á að hefja framkvæmdir og ráða menn í vinnu.
Stjórnmál og samfélag | 4.1.2010 | 11:27 (breytt 25.2.2010 kl. 09:53) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvernig jól heldur þetta fólk? hugsaði ég þegar í ljós kom að einhverjir ópruttnir aðilar höfðu stolið litla, fallega barrtrénu sem húsfélagið keypti í sumar.
Tréið var fallega keilulaga og mun án efa sóma sér vel sem jólatré í lítilli íbúð. Þjófarnir höfðu tekið það með rótum úr steyptu kerinu þar sem það stóð og af vegsummerkjum að dæma sett það í skottið á bílnum sínum og ekið í burtu.
Já, varla heldur þetta fólk kristileg jól né heldur hátíð ljóss og friðar.
Þetta er auðvitað fjárhagslegt tjón fyrir okkur íbúa og verr finnst mér að hugsa að einhver heldur jól undir stolnu jólatré. Eru virkilega til menn sem eru siðferðislega á svo lágu plani?
Stjórnmál og samfélag | 14.12.2009 | 12:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í síðasta tölublaði finnska menningartímaritsins Hiidenkivi var fjallað um kreppur í tímanna rás. Ítarleg umfjöllun var um kreppuna kringum 1930 og svo um kreppuna sem skall á í byrjun 10. áratugarins. Það sem einkennt hafði aðgerðir ríkisstjórnar Finnlands var að ríkið hóf framkvæmdir í stórum stíl til að spyrna við vaxandi atvinnuleysi. Stofnbrautir voru byggðir og margt fleira.
Væri ekki gáfulegra fyrir þá Jóhönnu og Steingrín að hvetja til að byggja einmitt framhaldið af Sundabrautinni, leggja Miklubraut í stokk og bæta vegakerfið á Norðurlandi? Fleira væri efalaust hægt að gera þó að ég hafi ekki fylgjst svo gjörla með.
Finnar lærðu nefnilega að atvinnuleysinu fylgir fleira en minnkandi tekjur ríkis og eintaklinga og var flest af því neikvætt. Þess vegna er mikilvægt að halda uppi fullri atvinnu og létta þannig á að fyrirtækin gætu haldið áfram að starfa.
Það er ekki hægt að leiðrétta mistök ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar með því að fara út í öfgar í hina áttina. Meðalvegurinn hefur alltaf reynst bestur.
Stjórnmál og samfélag | 11.12.2009 | 11:31 (breytt kl. 11:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þjóðhátíð Finna, sem þeir sjálfir kalla reyndar "sjálfstæðisdag" er 6. desember en á þeim degi árið 1917 ákvað finnska senatið að lýsa yfir fullu sjálfstæði landsins. Allt síðan hafa Finnar haldið þessum degi hátíðlegum en hátíðin hefur oftast verið mjög alvarleg. Á þeim degi minnumst við þeirra fórna sem þjóðin varð að færa til að varðveita sjálfstæðið og verða til sem þjóð. Fyrst var það borgarastyrjöldin 1917-1918 og síðan vetrarstriðið sem hófst í lok nóvember 1939 og síðan framhaldsstriðið sem var ekki endanlega búið fyrr en 1945.
Faðir minn og hans kynslóð barðist á vígvöllunum og kunurnar á "heimafrontinu" en stríðin settu mark sitt á þessa kynslóð og einnig á börn þeirra. Það er sjálfsagt að enginn kemst af stríði óskaddaður. Sumir missa limi en flestir sálarjafnvæginu og ná því aldrei aftur. Því geta þeir varla verið fyrirmyndar uppalendur.
Það er því engin furða að yfir hátíð Finna er meiri alvarleiki en 17. júní hátíðinni hér á landi.
Stjórnmál og samfélag | 7.12.2009 | 09:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þessa dagana streyma inn auglýsingabæklingar frá öllum mögulegum fyrirtækjum og verslunarkjörnum. Ég hef oft hugsað um hvort Íslendingar stunda rannsóknir á auglýsingarmarkaði og hvort allir þessir bæklingar skili tilætluðum árangri. Fyrir nokkrum árum gerðu nefnilega finnskir viðskiptafræðinemar rannsókn um þetta að komust þeir að þeirri niðurstöðu að fyrirtækin eyddu miljónir í auglýsingar en athuguðu ekki hvort eitthvert gagn væri af þeim - og að meirhluti auglýsinganna bar engan árangur.
Allt þetta rifjaðist upp hjá mér því að á vef eins dagblaðs var í gær skrifað um markhóp auglýsinganna. Sagt var að einhverra hluta vegna beindist yfirgnæfandi meirihluti auglýsinganna að fólki undir fertugu - á meðan kaupmátturinn í raun væri hjá þeim eldri. "Spámaðurinn" sem talað var við taldi að þetta mundi breytast í framtíðinni.
Þegar ég fletti nokkra þeirra bæklinga sem komu til okkar þá fann ég þarna ekkert sem höfðaði til mín, ekki einasta hlut. - Já, það er greinilegt að íslensk fyrirtæki hafa heldur ekki uppgötvað okkur eldra fólk. Það er nefnilega oft sagt að eldra fólk kaupir ekki neitt, þess vegna borgar sig ekki að höfða til þeirra. Er það ekki bara þannig að við kaupum ekki neitt því að við finnum ekkert við okkar hæfi í þessum pésum?
Stjórnmál og samfélag | 2.12.2009 | 09:20 (breytt kl. 09:24) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stjórnmál og samfélag | 17.11.2009 | 11:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í dag er dagur íslenskrar tungu og hefur málnefdin í því tilefni sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram koma áhyggjur af stöðu íslenskunnar. Nú kú vera þannig að hægt er að útskrifast sem grunnskólakennari án þess að hafa tekið eitt einasta námskeið í móðurmáli, en auk þess hefur kennslustundum í framhaldsskóla minnkað.
Sem útlendingur sem hefur lagt á sig að læra íslensku finnst mér þetta ískyggilega þróun. Fyrir allmörgum árum tók ég eftir því að kennarar af yngri kynslóðinni voru ansi slappir í stafsetningu og málfræði. Svo þegar í tísku kom að segja að maður væri með lesblindu þá fannst mér eins og margir þeirra notuðu þessa afsökun, að vera með lesblindu. En ég spyr: Á kennari sem kann ekki sjálfur stafsetningarreglurnar nokkuð að vera að kenna stafsetningu? Mér finnst líka að móðurmálskennari ætti að kunna helstu atriði málsögunnar.
Já, ég er sammála þeim í málnefndinni.
Svo er það enskan sem Jónas ristjóri nefnir á heimasíðu sinni. Ungur piltur sagði mér einu sinni að sér gangi illa að semja á íslensku, allt hljómaði svo miklu betur á ensku! Engin furða að yngri kynslóðin kann ekki íslensku, þar sem næstum allt efni ljósvakamiðlanna er á ensku, tölvan og netið er á ensku og svo er engin almennileg íslenskukennsla í skólunum!
Ætli ástandið sé ekki verra en á dögum Rasmusar Rask?
Stjórnmál og samfélag | 16.11.2009 | 09:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nokkrir áhugamenn um Miðausturlanda skruppu til Egyptalands um dagana og fór síbúinn með þeim. Þetta var sannkölluð menningarreisa, bæði lærðum við um forna menningu og einnig fylgðumst með lífi nútíma Eypta. Maður sá þarna að líf Egyptanna var ekki beinlínis dans á rósum en allflestir voru þeir vingjarnlegir í garð okkar og reiðubúnir til að hjálpa.
Skemmtilegt atvik gerðistí Kairó, þegar við vorum þarna 11. nóvember. Þann dag var farið að selja miða í fótboltaleikinn á milli Egypta og Algeríumanna. Okkur var sagt að þessi leikkur væri mjög mikilvægur því að Egyptar ættu að vinna til að hafa einhverja möguleika á að komast í heimsmestarakeppni.
Hótelið okkar vasr skammt frá æfingavelli vinsælasta fótboltaliðs Egypta, El Ehli, og af skyndákvörðun keypti ég egypska fánann á torginu á miðbænum en þeir voru seldir til stuðningsmanna.
Áhrifin af fánakaupum mínum vorum allt önnur en ég hafði sjálf búist við. Þetta var á mesta háannartíma og bílar keyrandi í 3-4 akreinum en fáninn vakti athygli ökumanna. Það var flautað í næstum hverjum einasta bíl, þeir sem í þeim sátu, brostu í kampinn og veifuðu, sneru þumalfingrinum upp og kölluðu "Egypt, Egypt!" Á tveimur stöðum stoppaði lögreglan umferðina svo að "fánaberinn" gæti farið yfir götuna án þess að stofna lífi sínu í hættu.
Já, Egyptar eru svo sannarlega tilfinningaverur!
Leikurinn fór svo fram í dag (14.11.) og var í fréttunum sagt að Egyptar hafi unnið en gerðu ekki nógu mörg mörk til að tryggja sér endanlega sæti.
Stjórnmál og samfélag | 15.11.2009 | 19:30 (breytt kl. 19:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mynd: Johan Botha, suður-afrískur tenór með mikla rödd og umfang
Fór í kvöld til að sjá og hlusta á sýningu Metropolitan óperunnar á Aida eftir Verdi. Það er greinilegt að mikill áhugi er á óperu á Íslandi því að salurinn í Kringlubíó var sneisafullur, enda var þetta glæsileg sýning á alla staði. En satt best að segja gat ég ekki sætt mig við að horfa á Johan Botha syngja Radamesar hlutverk. Hann átti að vera ástmögur Aidu og einnig að prinsessan Amneris átti að vera næstum því sturluð af ást sinni á honum. En því miður, það var erfitt að ímynda sér að Johan Botha gæti verið draumaprins neinnar ungrar stúlku. Til þess er hann allt of feitur. Hann er einfaldlega sagt akfeitur, næstum því afmyndaður af offitu. Og skiptir þá litlu hversu fallega hann syngur. Johan átti greinilega erfitt með að hreyfa sig á sviðinu, enda blés hann eins og hvalur. Sem sé, hann ætti að fara í megrun en því miður grunar mig að eftir hverja sýningu fer hann á hótelherbergið og fær sé samloku og bjór.
Reyndar var Dolora Zajick sem söng Amnerisar hlutverk einnig í mjög góðum holdum en einhvern veginn virtist hún bera sig betur. Karita Mattila, sem söng í fyrri sýningu Kringlubíós (Toscu fyrir hálfum mánuði) sagði einmitt einhvern tímann að samkeppnin væri svo hörð nú á dögum að ekki þýddi annað en að líta vel út, röddin ein dugði skammt. En það virðist sem sé ekki gilda í Metrópólitan enda er Violeta Urmana, sem söng Aidu, heldur engin rengla þó að hún hafi samsvarað sig betur en Dolora og Jóhan.
En burt séð frá útliti Radamesar þá skemmtum við okkur vel, Þetta var glæsileg sýning, leikmyndin og búningarnar hreint augnayndi og söngvarar virkilega með "large voice". Ég hlakka til næstu sýningar. En reyndar er ég búin að bjóða fjölskyldunni í Ástardrykkinn í Íslensku óperunni með Dísellu og Garðar Thór í aðalhlutverkum á föstudaginn kemur.
Stjórnmál og samfélag | 29.10.2009 | 00:27 (breytt kl. 00:31) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007







